Category: Verkefni

Move the world!, bókin sem maður hannaði fyrir Magnús Scheving og LazyTown, á lítið gestahlutverk í nýjasta hefti Monocle – sem er jú uppáhalds tímaritið mitt. Gaman af því.

Lengi hef ég átt í vandræðum með nafnspjöld fyrir sjálfan mig. Sem hönnuður vill maður ekki hafa spjöld sem tilkynna að þau hafi komið úr stafrænu nafnspjaldatilboðsprenti; maður vill vera aðeins öðruvísi og veglegri. Ekki er verra ef spjaldið sýni hvers konar tilfinningu maður hefur fyrir efni og áferðum.

Að vera öðruvísi á þann mátann vill þó kosta ansi margar krónur ef farið sé…