Monthly Archives: May 2009

Ég snarstoppaði þegar ég rak augun í þessa merkingu í búðarglugga í Stokkhólmi. Ferðafélagar skildu ekkert af hverju ég var að hlæja fyrr en ég sagði þeim að stíga aftar og lesa textann.

Sérlega óheppileg vinnsla á stafabili, neðanmarka hönnun, eða sjónrænt Freudian slip?

Nú á dögunum var kynnt nýtt útlit á tímaritinu Newsweek. Þrátt fyrir ágæta forsíðu er hönnunin er ómarkviss og sérviskuleg. Hönnunin hæfir þannig alvarlegu fréttariti illa og lítur út eins og viðvaningsleg tækling á sömu gildum og voru höfð við hönnun Monocle tímaritsins; að vera „tímaritslegt“ frekar en „fréttaritslegt“ en samt innihaldsríkt.

Helstu gallar eru þeir að…

September 2008 var viðburðaríkur mánuður. Meðal atburða voru málefni AIG sem þurfti að fá 85 milljarði dala að láni frá Seðlabanka Bandaríkjanna til björgunar frá gjaldþroti. Á móti öðlaðist bandaríska ríkið tilkall til 80% hlutabréfa í félaginu og vissan rétt til ákvörðunartöku í málefnum þess.

Þessar fréttir vöktu strax pælingar hjá fótboltaaðdáendum – sérsta…

Nokkur kvikmyndaplaköt æptu hressilega á mig við skoðun á sýnishornum („trailerum“) á Apple.com. Ástæðan var ekki gæði eða fegurð, heldur var hún fyrst og fremst sú staðreynd að plakötin virðast vera aðskilin við fæðingu.

Þetta fékk mig til að hugsa. Er nýtt trend að spretta upp í Hollywood eða er Apple sjálft að hanna þessi plaköt þegar engin eru komin frá framleiðendum?…