Monthly Archives: June 2009

Bloggið hefur hlotið tvær sérstaklega skemmtilegar og nytsamlegar viðbætur sem mig langar að kynna fyrir lesendum.

Símaútgáfa

Ef bloggið er skoðað í síma, t.d. iPhone, þá birtist það í ham sem er sérsniðinn að slíku umhverfi. Fyrir þá sem líkar illa við slíkar útgáfur er svo auðvelt að fá venjulega útlitið með því að smella á „View Full Version“.

Tilkynning um svar á athugas

Nú á dögunum kom út fjórða útgáfa Safari vafrans sem hefur fengið prýðileg viðbrögð, enda geysihraður og stútfullur af nytsamlegum nýjungum.

Áður en Safari 4 var sleppt út á veraldarvefinn var prufkeyrt Beta útgáfu, en í þeirri útgáfunni var ein mjög áhugaverð nýjung sem rataði ekki í lokaútgáfuna: fliparnir (tabs) voru á toppnum. Þessi nýjung var mjög mikil frétt því hún bo…

Ekki kemur allt gott í hönnun úr veröld Adobe. Góð áminning þess efnis er forsíða New Yorker frá 1. júní, en þar notaði listamaðurinn Jorge Colombo forritið Brushes til að teikna forsíðuna… á iPhone!

Heimild: Guardian

Lengi hef ég átt í vandræðum með nafnspjöld fyrir sjálfan mig. Sem hönnuður vill maður ekki hafa spjöld sem tilkynna að þau hafi komið úr stafrænu nafnspjaldatilboðsprenti; maður vill vera aðeins öðruvísi og veglegri. Ekki er verra ef spjaldið sýni hvers konar tilfinningu maður hefur fyrir efni og áferðum.

Að vera öðruvísi á þann mátann vill þó kosta ansi margar krónur ef farið sé…