Um daginn rakst ég á skemmtilegt tól fyrir alla þá sem vilja halda uppi vefgalleríi eða portfolio en eru ekki endilega kóðaapar eða viðmótssnillingar. Tólið er portfolio-kerfið Indexhibit.
Helsti kostur kerfisins er hversu sérhæfð og vönduð lausn það er á ákveðnu vandamáli þar sem höfundar virðast ekki hafa misst augastað á forsendunum: að hafa efnið í algjörum forgrunni og viðmó…