Time Inc., útgefandi Sports Illustrated, hefur gefið út þetta áhugaverða myndband sem sýnir afrakstur hugmyndavinnu um framtíð tímaritsins á „tablet tölvum”. Hugmyndin var þróuð í samstarfi við The Wonderfactory, en þeir sérshæfa sig í stórum og flóknum vefhönnunarverkefnum.
Hugmyndirnar eru flestar mjög góðar og lógísk samblöndun tveggja miðla. Það er frábær viðbót að geta sótt ítarefni, skoðað myndbönd eða fleiri ljósmyndir með einni snertingu. Að geta valið að kafa dýpra í greinarnar á þennan hátt, ef áhugi sé til staðar, hlýtur að vera helsti kostur þess að vera með tímaritið á skjá fremur en á pappír.
Ég set þó persónulega stórt spurningarmerki við þá miklu áherslu sem hefur verið lögð á að útrýma línulegri lesningu. Hugmynd Time Inc. og The Wonderfactory er að lesandinn geti raðað efninu upp eftir sínu eigin höfði og að hoppað óreglulega til í blaðinu. Hvað skilur slíkt eftir? Er það kannski mjög stór og flókin vefsíða?
Eitt af grundvallaratriðum tímarita er auðvitað hvernig maður flettir í línulegri röð, á meðan maður vafrar um flestar vefsíður á dýnamískari hátt. Í tímariti, þar sem efnið er stöðugt og óbreytilegt, hefur maður jafn framt góða yfirsýn yfir innihald og hvað er búið að skoða. Á vefsíðu, þar sem efnið er sífellt að breytast, þarf maður ekkert endilega að vita hvað sé skoðað og hvað sé óskoðað.1
Hugmyndir Time Inc. og The Wonderfactory virðast því bera merki þess að vefhönnunarstúdíó hafi tæklað bróðurpart hugmyndavinnunar. Kannski væri sniðugt að fá nokkra hönnuði með mikla þekkingu á tímaritum til að hugsa nákvæmlega um hver sé kjarni þeirra – svona áður en áherslur framtíðar eru niðursettar.
- Þótt vissulega séu til vissar tegundir vefsíðna sem leggja áherslu á línulega lesningu, t.d. bloggsíður. [↩]
Post a Comment