Proforma-islenska

Í nýafstaðinni endurhönnun á Monitor tímaritinu (sem kemur út á morgun) var ég langt kominn í prufum á meginmálsletri; kominn með hugmynd um fjögur letur sem hentuðu karakterslega og upp á læsileika, þegar ég skipti út „lorem ipsum”-textanum fyrir íslensku. Strax og fyrsta blaðsíðan rann úr prentaranum rak ég augun í hið stórfurðulega litla ð sem var í letrinu Proforma (sjá hér enn frekar).

Proforma er hannað af Petr van Blokland sem er alls enginn aukvisi þegar kemur að leturhönnun. Hann lærði hana í Konunglegu akademíunni í Hag og vann m.a. Charles Peignot verðlaunin árið 1988 og var tilnefndur til hönnunarverðlauna Rotterdam árið 1995. En skilningur hans á þessum einkennilega staf, sem Ð-ið er, virðist ekki vera mikill því hefðin er ekki sú að forma hann með striki í gegnum d.1

Ég ætla að giska á að enginn íslendingur hafi verið í nefnd Charles Peignot árið 1988 þar sem letrið er gott sem ónothæft fyrir íslensku. Eða íslenska ónothæf fyrir letrið?

Fyrst og fremst myndi ég reyndar vilja sjá Ð-ið hverfa úr stafrófinu – en þangað til mætti kannski að benda van Blokland á að endurskoða Ð-ið í þessu annars vegar frábæra letri.

  1. Upplýsingar um hönnun á ð má finna á vefsíðu Gunnlaugs Briem. []

Post a Comment

Your email is never shared. Required fields are marked *

*
*