Fyrir nokkrum dögum skrifaði ég um hugmyndir Time Inc. að framtíð tímaritsins á tablet tölvum. Margt í þeirra pælingum var jákvætt en þó virtist vefhönnunarfyrirtækið, sem Time Inc. réði í verkið, taka lítið tillit til grundvallarforsenda tímaritsins. Niðurstaðan var í raun flókin vefsíða undir útlitslegum innblæstri tímarits.
Nú hefur Bonnier, útgefandi Popoular Science, birt sína eigin hugmynd sem þeir kalla Mag+, unna í samstarfi við hönnunarráðgjafana í BERG. Þessir aðilar höfðu forsendurnar alveg á hreinu:
Something that emerged in the research that was really interesting was that [magazines] can be completed. So they are very noble. That one can read through it and finish it. And have a sense that they have consumed an editorial package without necessarily the kind of endless infinitely expanding RSS feed, for example, where there really is no end.1
Þannig halda þeir í línulega lesningu og tilfinninguna fyrir heildarpakkanum sem tímaritið er. Þetta heldur í sérstöðu tímaritsins og grunninn sem gerir það eftirsóknavert.
Í hugmynd Bonnier og Berg var svo bætt ýmsum mjög lógískum bónusum sem ný tækni leyfir – en allt án þess að skerða notagildið eða ganga gegn forsendum. Dæmi eru hvernig notandi getur flett í gegnum ljósmyndir, leitað í texta, o.fl.
Bonnier og BERG hafa nálgast verkið með frábæru hugarfari, áhuga, og skilningi fyrir efninu. Ef tímaritið, og jafnvel dagblaðið, mun eiga framtíð í þessarri mynd, þá er auðvelt að sjá lestölurnar taka á flug aftur.
Meiri lestur um Mag+ hjá Bonnier eða BERG.
- Jack Schulze hjá BERG í viðhengdu myndbandi. [↩]
Post a Comment